Privacy policy
LEIGUSKILMÁLAR
Leigufyrirkomulag
Allur texti, myndir og verð á www.skrautbarinn.is eru birt með fyrirvara um breytingar.
Við mælum með að pantanir séu gerðar með góðum fyrirvara í gegnum heimasíðuna. Greiða þarf fyrir pöntun við bókun.
Almennt þarf að sækja allar leiguvörur nema akstur sé bókaður og greiddur við leigu. Hægt er að óska eftir afhendingu gegn aukagjaldi eftir samkomulagi.
Afbókun þarf að berast með að minnsta kosti 48 klukkustunda fyrirvara til að komast hjá greiðsluskyldu. Afbókanir skulu sendar á skrautbarinn@gmail.com .
Leigutími og skil
Leigutími miðast við einn sólarhring nema annað sé bókað.
Óski viðskiptavinur eftir lengri leigutíma en hann bókaði getur bæst við aukagjald samkvæmt gildandi verðskrá.
Vörum skal skila á umsömdum tíma og í sama ástandi og þær voru afhentar. Sé vörum ekki skilað á réttum tíma áskilur Skrautbarinn sér rétt til að innheimta viðbótarleigu fyrir hvern byrjaðan dag.
Ábyrgð og meðferð vara
Ábyrgð á leigðum vörum flyst yfir á leigutaka við afhendingu og þar til vörum hefur verið skilað og þær yfirfarnar af Skrautbarnum.
Leigutaki ber ábyrgð á tjóni, skemmdum, tapi eða rangri notkun á öllum vörum á leigutíma.
Kælir
- Kælirinn skal eingöngu notaður innanhúss.
- Vara skal tækið fyrir raka, vatni og aðeins nota innandyra.
- Kælirinn þarf að vera tengdur við rafmagn, 220 wilt.
- Leigutaki ber ábyrgð á skemmdum á kælinum og aukahlutum sem honum fylgja eða skemmdum vegna notkunar utandyra.
Marmara kökudiskur
- Kökudiskurinn er þungur og viðkvæmur.
- Ávallt skal halda neðst undir allan kökudiskinn við flutning.Alls ekki bara halda í toppinn.
- Marmari er hvítur og getur dregið í sig sósur, litaðan vökva og fitu. Leigutaki skal gæta sérstakrar varúðar við notkun.
- Brot, sprungur, flísar eða blettir sem ekki nást úr teljast tjón á ábyrgð leigutaka.
Nammiskammtarar
- Ekki skal setja hendur eða fingur inn í skammtarana.
- Skila skal skömmturum hreinum og tómum.
- Leigutaki ber ábyrgð á öllum skemmdum vegna tjóns á nammiskammtara.
Hátalari, standur og hljóðnemi
- Búnaðurinn er eingöngu ætlaður til notkunar innanhúss.
- Ekki má útsetja búnað fyrir raka, vökva eða höggum.
- Leigutaki ber ábyrgð á öllum skemmdum vegna falls, raka eða rangrar notkunar.
Tjón, tap og tryggingargjald
Leigutaki ber fulla ábyrgð á öllum skemmdum eða tapi á vörum meðan þær eru í hans vörslu.
Skrautbarinn áskilur sér rétt til að innheimta tryggingargjald við afhendingu. Tryggingargjaldið er endurgreitt við skil að því gefnu að vörur skili sér í fullnægjandi ástandi.
Ef vara skemmist eða týnist greiðir leigutaki kostnað vegna viðgerðar eða fullt endurnýjunarverð vörunnar.
Þrifagjald
Öllum vörum skal skila hreinum. Sé því ekki sinnt áskilur Skrautbarinn sér rétt til að innheimta þrifagjald samkvæmt gildandi verðskrá.
Takmörkun ábyrgðar
Skrautbarinn ber ekki ábyrgð á slysum, meiðslum eða tjóni sem kann að verða við notkun leigðra vara.
Um skilmála þessa gilda íslensk lög.