Hátalari + standur + mæk

Hátalari + standur + mæk

10.000 kr
Verð með afslætti  10.000 kr Fullt verð 
Fara í vöruupplýsingar
Hátalari + standur + mæk

Hátalari + standur + mæk

10.000 kr
Verð með afslætti  10.000 kr Fullt verð 
Upplýsingar

Hátalari með stand og mæk til leigu.

Öflugur rafhlöðuknúinn PA-hátalari sem skilar kraftmiklu og skýru hljóði með djúpum bassa og tærum hátónum. Hentar jafnt fyrir veislur, viðburði innandyra.

Innbyggð endurhlaðanleg rafhlaða veitir mikið frelsi án þess að þurfa rafmagnstengingu og meðfylgjandi þráðlaus hljóðnemi hentar vel fyrir söng, kynningar og tilkynningar. Bergmálsstilling á hljóðnemanum gefur hljóðinu faglegri blæ.

Hátalarinn býður einnig upp á LED-ljós sem hreyfast í takt við tónlistina og skapa skemmtilega stemningu. Hægt er að tengja fleiri en einn hljóðgjafa í einu og para tvær einingar saman fyrir steríóhljóð.

USB-spilun og hleðsla, ásamt handföngum og hjólum, gera Total PA Apex einstaklega þægilegan í flutningi og notkun hvar sem er.

Leiga miðast við sólarhring.

Sóttar leiguvörur og pantanir fara fram kl: 13:00-14:00 alla virka daga eða kl: 12:00-13:00 um helgar.

Skil á leiguvörum fer fram kl: 12:00-13:00 alla virka daga eða kl:11:00-12:00 um helgar.

Ath ef ekki gengur að bóka hátalarann, vinsamlegast hafið samband við skrautbarinn@gmail.com fyrir frekari upplýsingar.

Vörur sem gætu hentað þér